top of page

Agile-þjálfun

Hvernig get ég treyst mér til þess að ganga inn í hvaða aðstæður sem er og vitað að ég mun ráða við þær?

Þetta er kjarninn í minni Agile-þjálfun. Saman byggjum við þig upp sem leiðtoga (hvort sem þú ert með mannaforráð eða ekki) þannig að þú treysti þér til að takast á við alla þá óvissu og fækjur sem lífið og umhverfið okkar bíður upp á. 

Algengar áskoranir leiðtoga í fyrirtækjum (þar sem óvissa og flækjur eru allsráðandi í umhverfinu) eru t.d.

  • Endalaus barátta milli "running the business" og "changing the business"

  • Þrátt fyrir langa vinnudaga upplifa þeir sig oft sem flöskuhálsa sem tefja fyrir breytingum og framkvæmdum

  • Þeir vita að lykillinn að árangri liggur hjá fólkinu þeirra en finna einhvernvegin ekki rétta skráargatið þrátt fyrir ítrekarðar tilraunir 

Hvað er þá til ráða? 

Við byrjum á byrjuninni - sem er staðan akkúrat í dag.

Ef þú veist ekki hvar þú ert getur þú ekki ratað á áfangastað

Ef við ætlum að finna réttustu leiðina fram á við þá verðum við að vita hvar við erum í dag.  Við byrjum því að rýna í þig sem leiðtoga í dag, teymið þitt og umhverfið þitt. Finnum helstu áskoranirnar og sigrana. Svo byrjum við að skoða áfangastaðinn og varða leiðina fram á við og finna út hvað þarf til þannig að þessi leið nái fram langtímaárangri.

1.

Einstaklingsmiðuð nálgun út frá styrkleikum, færni, hæfni og umhverfi hvers og eins

2.

Nálguninn byggir á blöndu af markþjálfun, handleiðslu, greiningu og fræðslu.

3.

Ef þú breytir engu - breytist ekkert!

4.

Hvað er andstæðan við flöskuháls?

5.

Þrautsegja og seigla til að varða leiðina að langtímaárangri

Colorful Leaves

Mín Agile nálgun

Mín nálgun á Agile kemur frá Agile hugarfari - ekki út frá tólum og tækjum. Ég kenni þér því ekki Scrum.  En það sem ég get stutt þig með er að:

  • finna og æfa færnina að blómstra í óvissu

  • virkja kraftinn í fólkinu þínu

  • draga viðskiptavininn nær öllu ferlinu

  • setja athyglina/tímann/orkuna á það sem er mikilvægast núna

  • rýna-ítra-læra 

Ég nota blöndu af markþjálfun, handleiðslu, greiningu og fræðslu - allt eftir því hvar viðskiptavinurinn er staddur. 

Vantar þig kannski annarskonar stuðning?

bottom of page