top of page

Markþjálfun

“Markþjálfun (e. coaching) er aðferð sem er notuð til þess að hjálpa fólki að ná meiri árangri í eigin lífi. Það er aðferð sem miðar að því að hjálpa fólki að finna sinn innri styrk og stytta leið að ákveðnu markmiði, hvort sem það er persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði, bætt starfsumhverfi eða til þess að ná betri árangri og frammistöðu í eigin lífi."

Markþjálfun - vilji , vit og vissa 

Matildu Gregersdotter, Arnór Már Másson og Hauk Ingi Jónasson

Mínar áherslur í markþjálfun

Ég hef ofurtrú á því að við búum öll yfir þeim krafti sem við þurfum á að halda til þess að blómstra og lifa innihaldsríku lífi. Við þurfum “bara” að finna hann innra með okkur og leysa hann úr læðingi. 

Leiðin okkar þangað er oftast ekki bein og breið og því miður engin uppskrift til sem hentar öllum. En lykillinn er að byrja þar sem við erum akkúrat núna og vita hvert við viljum fara. Fyrsta skrefið felst því oft í því að komast að því hvert við viljum í raun stefna og af hverju þessi vegferð er okkur mikilvæg. 

Mér reynist oft erfitt að útskýra hvað það er sem ég geri í markþjálfunarsamtölum því það er svo samofið mér sem persónu. Í flæðinu verður markþjálfunartæknin framlenging af mér. Hugleiðslur hafa fært mér dýpri nærveru í núinu þannig að ég get verið algjörlega til staðar í samtalinu og skynjað hvað það er sem þarf að tala um. Í samtölum þar sem athyglin og orkan fer á það sem við getum stjórnað fara ótrúlegir hlutir að gerast. 

Fyrir mér er markþjálfun svolítið eins og list sem ekki verður skilin til fulls með rökheilanum. Mig langar að hvetja þig til að prófa og upplifa og skoða hvort þetta er aðferð sem hentar þér í átt að enn innihaldsríkara lífi. 

kristrun_konrads_6.jpg

Viltu komast að því hvort 

markþjáfun henti þér?

 

Ég bíð upp á 45 mín frían kynningartíma þar sem þú getur mátað þig við markþjálfun. Heyrðu í mér og við finnum tima.

 

Bjarni2_edited.jpg

Kristrún er einstök í sinni nálgun. Á fundum okkar fimlega leiðir hún mig til samræðna og umhugsunar um kima væntinga, styrkleika, framtíðarsýnar og betra sjálfs. Ég hlakka til funda okkar og iðulega hugsa ég til baka hvernig henni tókst liðlega að leiða mig átakalaust að þeim viðfangsefnum sem skipta mig mestu. Ég ráðlegg öllum leiðsögn Kristrúnar og hennar faglegu handleiðslu.

Bjarni Guðmundsson

 - Verkefnastjóri

%252525C3%252525A1sa_edited_edited_edite

Í markþjálfun hjá Kristrúnu mætir þér hlýlegt, jákvætt og uppbyggilegt viðmót. Hún er til í að spyrja þeirra spurninga sem ég þarf á að halda og þorir að ýta við manni þegar þarf.

Það eru einhverjir töfrar sem eiga sér stað í markþjálfunartíma hjá henni. Hún hjálpar manni að hjálpa sér sjálfum og sjá hvað er hægt að gera öðruvísi ef það sem maður hefur verið að gera er ekki að virka. Ég get svo sannarlega mælt með markþjálfun hjá Kristrúnu og hefur hún alveg einstakt lag á því að hjálpa manni að velja sér viðhorf.

Ása Kolbrún Hauksdóttir

 - Hjúkrunarfræðingur

silja.jpg

Ótrúleg næmni Kristrúnar á mannlegu eðli, einlægur áhugi hennar á fólk ásamt opna hjarta hennar gerir það að verkum að það er auðvelt að ræða við hana um vonir sínar og drauma. Hún hefur einstakt lag á því að leiða mann að hindrunum en um leið að finna leiðir til að ryðja þeim úr vegi og þar með ná markmiðum sínum.

Eftir alla okkar fundi er ég einbeittari og spenntari fyrir því að takast á við allar áskoranir, bæði í lífi og starfi.

Silja Rut Thorlacius

 - Ljósmyndari

Vantar þig kannski annarskonar stuðing?

bottom of page